Sara María Karlsdóttir með HRD Antwerp Certified Diamond Grader Diploma

Um mig

Ég heiti Sara María Karlsdóttir og er stofnandi OMARIA

Áhugi minn á demöntum og fallegum skartgripum varð að ástríðu sem leiddi mig til HRD Antwerp, þar sem ég menntaði mig sem vottaður demantagreinir.

Með OMARIA langaði mig að skapa stað þar sem fagleg þekking, persónuleg þjónusta og vandaðir skartgripir fara saman. Fyrir mér snýst val á demanti ekki eingöngu um stærð eða verð, heldur um gæði, hlutföll og þá eiginleika sem gera hvern demant einstakan.

Allir demantar og skartgripir hjá OMARIA eru valdir af kostgæfni með áherslu á gæði og tímalausa hönnun. Markmiðið er að bjóða skartgripi sem endast, bæði að gæðum og útliti, og verða hluti af sögu eigandans um ókomin ár.

Velkomin til OMARIA