Skilmálar
Almennir viðskiptaskilmálar
OMARIA er rekið af SARAOMARIA ehf. Með kaupum í vefverslun OMARIA samþykkir viðskiptavinur þessa viðskiptaskilmála.
Verð og greiðslur
Öll verð í vefverslun eru gefin upp í íslenskum krónum og innihalda virðisaukaskatt þar sem það á við. OMARIA áskilur sér rétt til að breyta verði án fyrirvara. Verðbreyting hefur ekki áhrif á pöntun sem þegar hefur verið staðfest.
Pöntun telst staðfest þegar greiðsla hefur farið fram og staðfesting á pöntun hefur borist viðskiptavini.
Vörur
Lögð er áhersla á að upplýsingar, myndir og lýsingar á vörum séu eins nákvæmar og kostur er. Þar sem demantar og aðrir náttúrulegir eðalsteinar eru einstakir geta verið smávægileg frávik milli steina.
Sérpantanir og sérsmíði
Vörur sem eru sérsmíðaðar, sérpantaðar eða aðlagaðar sérstaklega að óskum viðskiptavinar geta haft lengri afhendingartíma. Um rétt til að falla frá kaupum á slíkum vörum fer samkvæmt skila- og endurgreiðsluskilmálum OMARIA og gildandi lögum.
Afhending
Upplýsingar um sendingar og afhendingu koma fram í sendingarskilmálum OMARIA.
Skil og endurgreiðslur
Um skil, vöruskipti og endurgreiðslur gilda skila- og endurgreiðsluskilmálar OMARIA.
Gallar og kvartanir
Ef vara reynist gölluð eða röng er viðskiptavinur beðinn um að hafa samband við OMARIA eins fljótt og auðið er á sara@omaria.is. Lögbundinn réttur neytenda vegna gallaðrar vöru helst óskertur.
Ábyrgð og gildandi lög
Um viðskipti við OMARIA gilda íslensk lög. Skilmálar þessir takmarka ekki þann rétt sem neytendum er tryggður samkvæmt ófrávíkjanlegum ákvæðum íslenskra laga.
Samskiptaupplýsingar
OMARIA / SARAOMARIA ehf.
Netfang: sara@omaria.is